27.12.2023
Enn er staðan þannig að vegna kulda og mikillar notkunar á heitu vatni er lokað fyrir rennsli í Sundlaugina á Hofsósi.
Áfram verður heitt vatn í pottunum og þeir opnir, en laugin sjálf köld.
Ljóst er að þetta ástand mun vara fram yfir áramót og verður staðan endurmetin þá.
Notendur út að austan sem og annars staðar í firðinum eru hvattir til að fara sparlega með heita vatnið í kuldanum.