19.12.2022
Sparnaðaraðgerðir í hitaveitunni síðustu daga hafa skilað góðum árangri á Sauðárkróki. Áfram er þó ástæða til að fara varlega.
Í Varmahlíð er heitavatnsstaðan tæpari og þar má engu muna. Íbúar sem fá vatn þaðan eru beðnir að fara sérstaklega sparlega með heita vatnið.
Ekkert lát er á þessari kuldatíð og birtum við því sparnaðarráðin okkar aftur:
- Hafið glugga lokaða. Ef lofta þarf út eru gluggar opnaðir í stuttan tíma og síðan lokað aftur og jafnvel skrúfað fyrir ofn á meðan.
- Lækka á ofnum í herbergjum sem ekki eru í notkun. Athugið samt að okkur á ekki að verða kalt við sparnaðinn.
- Lækka stillingar á heitavatnspottum, það er alveg óhætt að lækka niður í 10° c. Það er hvort sem er ekkert gott að fara í pottinn í svona kulda.
- Lækka stillingar á innspýtingum í plön.
Skagafjarðarveitur þakka góðar undirtektir